Um Okkur

menn

Viðhald og Nýsmíði ehf. er alhliða byggingafyrirtæki sem stofnað var árið 1994 af Guðna Sigurðssyni og Brynjari Guðmundssyni . Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt síðan þá bæði í stærð og getu.

Starf fyrirtækisins er metnaðarfullt og stefnum við stöðugt að því bæta þjónustu við viðskiptavini okkar með því að auka hagkvæmni og skilvirkni.

Viðhald og Nýsmíði státar sig af vönduðum vinnubrögðum og sérlausnum sem ekki eru að finna á hverju strái.

Við búum að sérþekkingu á ýmsum sviðum sem nýst hafa viðskiptavinum okkar mjög vel og erum velundir það búin að taka að okkur krefjandi verkefni sem sniðin eru að þörfum viðskiptavinarins.

Markmið okkar er að vera fremstir í flokki hvað varðar gæði og fagmennsku. Það er okkur einnig mjög mikilvægt að veita eins góða þjónustu og völ er á og að samskipti við viðskiptavini verði sem auðveldust og ánægjulegust.

Comments are closed.